05 febrúar 2026

Heilög Agata – mey og píslarvottur - minning 5. febrúar

Heilög Agata frammi fyrir dómaranum. Eftirmynd glerlistaverks frá 16. öld úr Notre Dame kirkjunni í París

Heilög Agata var uppi á þriðju öld og tengist borginni Cataníu á Sikiley, þar sem dýrkun hennar er meðal hinna elstu í kristninni. Í ofsóknum keisarans Deciusar var hún handtekin af landstjóranum Quintianusi, sem bæði ofsótti kristna menn og girntist hana sjálfur. Hún hafnaði honum og hafnaði því að afneita Kristi. Fyrir dómi lét hún falla orð sem hafa lifað í kirkjunni síðan: „Mesti göfugleiki og frelsi er að vera þjónn Krists.“ Hún var pyntuð, limlest og svipt öllu sem heimurinn taldi vera styrk, en í fangelsinu birtist henni Pétur postuli og læknaði sár hennar. Að lokum var hún lögð á glóðir og lést 5. febrúar árið 251 með bæn á vörum. Ári síðar stöðvaðist hraun úr eldfjallinu Etnu þegar slæða hennar var borin fram gegn hrauninu — og sagan um hana varð samofin lífi borgarinnar.

Heilög Agata – mey og píslarvottur - minning 5. febrúar

Heilög Agata frammi fyrir dómaranum. Eftirmynd glerlistaverks frá 16. öld úr Notre Dame kirkjunni í París Heilög Agata var uppi á þriðju öld...